If you are gonna stay here...

Do not dwell in the past, do not dream of the future, concentrate the mind on the present moment.

Thursday, January 06, 2011

Annáll 2010

Árið 2010

Janúar
Þá flutti ég til Stokkhólms frá Gautaborg. Flutningar byrjuðu ævintýralega þar sem hjól á einni ferðatösku brotnaði á leiðinni upp síðustu snjó þöktu brekkuna sem lá að tímabundnu heimili okkar.


Þann 22. janúar fögnuðum við Villi árs afmæli. Villi hafði keypt fínt vín til að drekka áður en við færum út. Vorum ekki heppnari en það að vínið var skemmt.

En við fórum út að borða góðan á tapas bar á Söder.

Febrúar
Í febrúar fluttum við í litlu íbúðina okkar í Fagradal. Flott íbúð sem við höfðum það rosa gott í.
Ég byrjaði líka að vinna á Serrano.

Mars
Í mars fengum við Birnu í heimsókn. Henni sýndum við Stokkhólm og borðuðum góðan mat í tilefni 25 ára afmælis hjá kallinum.
Helgina eftir hélt Villi uppá stórafmælið og bauð öllum vinum okkar. Úr varð heljarinnar partý og skemmti fólk sér vel fram eftir nóttu.

Apríl
Apríl hófst frábærlega því páskunum eyddi ég í Egyptalandi. Magnað ferðalag þar sem ýmislegt var brallað. Píramídarnir skoðaðir, sofið undir stjörnubjartri nótt í Sahara eyðimörkinni, snekkja leigð og ófáum stundum eytt við sundlaugina sem fylgdi geggjaðri villunni okkar.

Maí
Vorið kom seint og framan af var kalt í Stokkhólmi. En ég náði þó nokkrum sólardögum áður en ég fór á klakann. En Svíþjóðardvölinni lauk með skemmtilegu Júróvisjón partýi í Danderyd og flutningum úr Fagradal.

Júní, Júlí og Ágúst
Sumrinu eyddum við skötuhjú á Íslandi við vinnu og leik. Ég vann sem markaðsfulltrúi hjá Betware og Villi fékk vinnu hjá Háskóla Íslands.
Sumarið einkenndist síðan af ferðalögum. Við fórum í bústað í Grímsnesi, á Þingvelli og fleiri staði. Við fórum í langt ferðalag um Vestfirði þar sem við skoðuðum langflest sem vert er að skoða og keyrðum um fjallavegi. Við keyrðum líka að Gullfossi og Geysi og skoðuðum Kerið.

September
Í september skelltum við okkur á leik Íslands og Danmerkur á Parken og heimsóttum í leiðinni kæra vini í Kaupmannahöfn. Leikurinn var tíðindalítill en Kaupmannahöfn frábær. Brölluðum margt og kynntumst hjólandi Kaupmannahöfn að hluta.

Október
Í október byrjaði ég aftur að vinna á Serrano. Mikil vinna en skemmtileg.
Mamma og pabbi komu í heimsókn og ég gerði mitt besta til að kynna þau fyrir yndislegu borginni okkar.

Nóvember
Nóvembermánuður einkenndist af vinnu. Ég fékk þó staðfestingu á því að ég hefði komist inn í nám á Íslandi. Var mjög glöð með að geta haldið áfram að vinna að meistaragráðu minni í Markaðsfræði.

Desember
Þessi mánuður leið alltof hratt. Jólin voru undirbúin og ég naut þess að geta bakað smákökur og gert heimili okkar í Danderyd aðeins jólalegra. Við flugum svo til Íslands seinnipart mánaðar og vörðum tíma með vinum og fjölskyldu sem maður hafði ekki séð í svo langan tíma.


Árið 2011 leggst einkar vel í mig. Á árinu 2011 hef ég aftur nám eftir árshlé. Við ætlum að koma okkur fyrir á Íslandi eftir að Villi klárar sitt nám í vor og því fylgir margt spennandi.
Hvað verður nákvæmlega kemur bara í ljós en ég er allavega spennt.




Wednesday, December 15, 2010

Góð ræktartæki gulli betri

Þetta tæki finnst mér snilld.

Ræktin mín er útbúin einu slíku og ég skemmti mér hið besta við að gera allskonar æfingar á þessu tæki.
Maður lítur reyndar út eins og hálfviti í sumum af þessum æfingum en það er aukaatriði. Og svo víbrar tækið svo skemmtilega að undir lokin er ég hætt að sjá skýrt og hausinn bara hristist og kinnarnar með.

Svo er hver æfing bara 30-45 sekúndur svo þetta er fljótt að líða.

Í WorldClass útá Nesi er reyndar svona tæki en það er bara staðsett á svo fáránlegum stað að ég pældi aldrei í hvað þetta væri. Hélt að þetta væri bara einhver massa vigt eða eitthvað.

En ég mæli með að prófa þetta tæki. Gerir ræktarferðina skemmtilegri að fá spikið aðeins til að hoppa og skoppa í víbringnum.


Thursday, March 11, 2010

Allir til STHLM


Mig langar í ný föt. Það er erfitt að reyna að spara í landi H&M. Mér finnst ég alltaf vera að eyða peningum en þó er fataskápurinn minn jafntómur og þegar ég flutti. Hið furðulegasta mál.
Síðan í janúar hefur enginn kjóll bæst í skápinn minn og bara tvö pör af skóm (eitt voru adidas töflur hitt sandalar fyrir Egyptalandsferð). Er þetta ekki skandall?? Mér finnst það.
Í þessi skipti sem ég hef kíkt í búðir til að finna eitthvað handa sjálfri mér hefur pressan orðið of mikil. Annaðhvort hef ég orðið fyrir vonbrigðum eða fengið valkvíða - í báðum tilvikum enda ég uppi með ekki neitt.

Maður segir þó ekki að maður sé aldrei að kaupa neitt. Bikiní & sandalar (nauðsynlegt fyrir sólarlandaferðir) og uppháir sokkar hafa nýlega fengið pláss í skápnum.

Málið með kvartinu mínu er ekki að ég sé vanþakklát heldur vantar mig bara shopping buddy - já, ég held það sé málið!! Svo ég hvet ykkur, lesendur góðir, til að koma í heimsókn til mín og hjálpa mér að eyða krónum. Sólin fer hækkandi og ég lofa góðu veðri í maí.
Þá er líka búið að opna tívolíið og nýfædd dýr í dýragarðinum og svona.



Jámms, ég vil Íslendinga í heimsókn í Fagradal!
Koma svo.

Ást,
Stellino!!

Friday, February 26, 2010

Vad som helst

Í Stokkhólmi er lífið gott. Er að vinna 50% og svo er það helst ræktin og heimilið sem maður er að sinna þessa dagana, auk Villa náttúrulega.
Við höfum gaman af því að prófa okkur áfram í eldamennskunni og stefnan er að koma heim sem snilldarkokkar. Villi er reyndar svo mikið fyrir chili að ég held að honum sé að takast að venja mig á að borða meira en meðalsterkan mat.

Síðan síðast

  • var ég nánast búin að skera af mér fingurinn.. Ókei smá ýkjur en stelpan var að skera sér rúnstykki með alltof beittum hníf, hann rennur til og zúmm... mikið blóð og djúpur skurður. Var fljót að hugsa, greip klósettpappír og hélt að fingrinum, hoppaði í skó og hljóp út. Sem betur fer er læknastofa í næstu götu svo ég tók stefnuna beint þangað. Í móttökunni hikstaði ég út úr mér að ég hefði skorið fingurinn á meðan tárin láku. Það þurfti ekki að sauma heldur var bara límt fyrir sárið. Lítur vel út í dag og verður gróið áður en ég gifti mig. Kem þó til með að skarta fallegu öri.
  • erum við búin að bóka okkur ferð til Egyptalands. Brottför 31.mars og heimkoma 10.apríl. Verður ljúft. Erum að fara 6 saman og búin að leigja okkur villu í Alexandríu. Stefnan er að tana sem mest, versla eitthvað og fá dash af egypskri menningu beint í æð. Var ég búin að segja hversu ljúft þetta verður.
Puss och kram från Stellino





Saturday, February 06, 2010

Really?!?

Ég er búin að vera grasekkja um helgina.

Kallinn kvaddi snemma á föstudagsmorgun og skellti sér ásamt sænskum kollegum sínum á dómararáðstefnu í Norrköping. Þar heillar hann víst alla með fallegum hlaupastíl, ótrúlegu þoli og fínu sænskunni sinni (no joke).

Ég sit hins vegar heima í Fagradal og stream-a íslenska júróvision og velti fyrir mér hræðilegu framlagi Ísland þetta árið. Hera Björk - Je ne sais qoui...orð að sönnu - botna bara ekkert í þessu.

Annars er lífið bara fínasta fínt - hér er allt í snjó en Stellan hvorki með bretti né skíði svo lítið hefur verið gert til að njóta hans. Eina sem hann hefur gert fyrir mig undanfarið er að fara illa með skóna mína sem eru ekki að fíla saltið á götunum. En það eru bjartari tímar framundan því það er líklega von á brettinu mínu í byrjun mars svo þá getur maður tekið á því - að því gefnu að snjórinn verði ennþá á sínum stað.


Höfum þetta stutt að sinni.

Hálfa herbergið í Fagradal bíður eftir fyrsta gestinum svo það er um að gera að fara að panta bara. Hver veit nema konfekt moli muni prýða koddan eins og alvöru gistingum sæmir.

Stay tuned,
Stellino!!

Thursday, February 04, 2010

Lazy Sundays and everydays!

Ég og Villi erum búin að koma okkur nokkurn veginn fyrir í nýju íbúðinni og líkar bara lífið vel hérna í Fagradal.

Hér snjóar og snjóar og virðist það engan endi ætla að taka. Er frekar leið yfir því að hafa skilið snjóbrettið eftir heima, en ég mun líklegast fá það til mín í byrjun mars. Vonum bara að það verði ennþá snjór hérna þá.

Atvinnuleit er í fullum gangi en hingað til hefur ekki mikið gerst. Er búin að skrá mig á atvinnumiðlun, fylla út umsóknir og senda tölvupósta. Krossa fingur yfir því að það fari eitthvað að gerast í þeim málum þar sem það á ekkert sérstaklega vel við mig að vera letihaugur að gera lítið sem ekkert.

Farin að gera eitthvað viturlegt af mér.

Kveðjur í bili,
Stellino

Monday, January 18, 2010

Little bit of this and that

  • Fyrsta blogg á nýju ári 2010 er skrifað í Stokkhólmi, nánar tiltekið á eynni Lidingö.
  • Er búin að vera alltof lengi á leiðinni að skrifa þetta en loksins kom það.
  • Ég og Villi erum nú flutt saman til Stokkhólms og höfum látið fara vel um okkur í litlu eins herbergis-íbúðinni hans.
  • Flutningar hingað gengu þokkalega eða allt þar til á síðasta kaflanum sem var 800 metra gangur frá stoppistöðinni að íbúðinni hans Villa. Á miðri leið lentum við í því að haldfangið á einni töskunni sem var hægt að draga brotnaði, og eftir það þyngdist róðurinn töluvert. EN.. við komumst þó heim að lokum :)
  • Dagarnir síðan ég kom hingað hafa liðið hratt, alltof hratt.
  • Ég er ekki komin með vinnu en það kemur vonandi fljótlega.
  • Síðastliðinn föstudag áttum við Villi eins árs afmæli sem við fögnuðum með að fara út að borða á tapas bar.
  • Í gær fór ég ásamt nokkrum stelpum í Konunglegu Óperuna að sjá Rakarann frá Sevilla.
  • Á morgun eru flutningar, því hefur staðið yfir heilmikil tiltekt (sem meðal annars fól í sér að afþýða ísskáp).
  • Við komum til með að búa hjá félögum Villa í nokkra daga áður en við fáum okkar afhenta á sunnudaginn.
  • Það verður áhugavert...
Læt heyra frá mér síðar,
Stellino